Leit

Auglýsing

Vinur

08. mars 2007 klukkan 12:50
Góður vinur er sá sem bjargar þér úr grjótinu þegar þú lendir í vandræðum...

Sannur vinur er sá sem situr í klefanum við hliðina á þér og segir: Djöfull var gaman í gær...

Thule, ískaldur

Hehe, þetta er auglýsing sem ég heyrði áðan, mjög fyndin finnst mér

Litli perri

12. febrúar 2007 klukkan 10:48
Ég var klipinn í rassinn núna um daginn, það er nú reyndar ekki frásögufærandi því að það gerist svo oftTala af sér, nema fyrir það að ég kallaði á eftir stelpunni,,, HEY, ÞÚ LITLI PERRI!!! Þá kom svarið, HEY, ÉG  ER EKKI LÍTIL!!!!!!, hehe alveg kostulegt. Og hver haldiði að þetta hafi verið, nú auðvitað stofnandi perraklúbsins auf Autobahn, hver annar. Titillinn kemur blogginu ekkert meira við en það sem komið hefur fra nú þegar. Hehe, ég er staddur í félagsfræðitíma og ég er að horfa á eitthverja mynd, vá hvað það er fyrndið að sjá svona pínulitlar steloru tala með hardcore breskum hreim sem að minnir á fátt anað en Friðsemd á góðum degi. Oh childreeen, you are suppose to be staaaring at me, not at the ceeiiling. Good times, good times. En það er annað sem er ekki eins gott, ég er ekki búinn að finna mér neinn tíma til að djamma síðustu vikur/mánuði/ár, því að það er alltaf eitthvað sem stendur í vegi fyrir mér að geta djammað. Annað hvort er ég að vinna eða Gunnarr er að vinna, síðan þegar við erum að undirbúa djamm, kemur í ljós að ég verð að skila heljarinnar ritgerð strax eftir helgi, sem er í dag, en ég var svo duglegur að ná að klára... alltaf sílærandi, eins og mínir fyrrverandi skólavinir tóku vel eftir, þá var ég alltaf sokkin í eitthverri góðri, eða slæmri bók. Kannski ástæðan fyrir því að þeir útskrifuðust allir en ekki ég Öskrandi.

do not read (ţetta er ekki hint um ađ ţú eigir ađ lesa ţetta)

12. janúar 2007 klukkan 05:47
Ég er að fara til Tenerife aftur eftir 2 og hálfan mánuð. Í þetta skiptið í útskriftarferð með Hafdísi. Ég hlakka óneitanlega rosalega mikið til að fara þangað aftur og hef verið að ímynda mér hvernig þetta verður. Því meira sem ég hugsa um það þá man ég hversu gaman það var í fyrra. Hlutir sem stóðu uppúr voru öll kojufylleríin með Danna og Bjarna, hehe þegar Danni og Bjarni sungu "You Shook me (all night long) í kareokí á hommabar. Alltaf þegar ég heyri þetta lag brýst fram bros og oftar en ekki finn ég hláturinn brjótast fram. Þegar Gunnarr fór út á svalir snemma um morguninn þegar við vorum nývaknaðir með Smirinoff Ice í hönd, Bretinn sem var í íbúðinni fór eitthvað að hlægja að því hversu hardcore hann var, byrjaður að drekka svona snemma, þegar hann var rétt búinn að sleppa orðinu kem ég á svalirnar með romm flösku... Bretinn heldur áreiðanlega að þetta sé eðlilegt hérna á klakanum. Svipurinn á einum öðrum þegar ég fór á hótelbarinn og skellti 10 evru seðli á borðið og sagði five Tequila. Þetta er eitthvað sem maður gleymir seint. Hlutur sem maður vildi bara gleyma strax var að stelpurnar þurftu alltaf að vera með eitthvað vesen, þessi fór í fílu út í þessa svo að þessar fóru bara í fílu út í hana, en daginn eftir var þetta allt búið að snúast við... þið vitið hvernig þessar stelpur geta verið.

Það er nú ekki allt, ég er líka væntanlega að fara annað hvort í aðra Germaníuferð með Gunnari og Grétar stóri kemur ef til vill með oss, eða þá að við förum þrír í svona Evrópu Interrail... verðandi áfangastaðir eru Prag, eitthvað hingað og þangað og síðan auðvitað Amstredam, ekki hægt að taka interrail í gegn um Evrópu án þess að fara þangað líka.

Líklega Hraðbrautarpartý um helgina, langt síðan eitt slíkt hefur verið haldið... eitthverntíman á seinasta ári, en ég vona að allir sem ætla að mæta hafa lært eitthvað af spakmælum mínum úr fyrri bloggum (nöldri yfir edrú fílupakki í partýi).

Vá... ég byrjaði á þessu bloggi um hálf átta í kvöld... mig langaði bara að skella eitthverju þarna út því að það er liðinn meira en mánuður síðan seinast.... ég á bara í erfiðleikum með að kreista eitthvað útúr mér og ég lofa eitthverju betra innan árs;)

Vinstri Grćn Gamalmenni og funheitt Stelpupartý

03. desember 2006 klukkan 23:10
Nú er skólinn hjá landanum að ljúka fyrir jólafrí, og eins og ævinlega þá eru allir of uppteknir við að læra til að gera gert eitthvað að viti, eins og djamma. Þannig var staðan í gær þegar við Gunnarr og Júlli ákváðum að tékka á lífinu, sem var heldur lítið í þetta skiptið. Byrjuðum á því að taka fara í partý hjá Vinstri-Grænum sem Helgi stóri sagði okkur frá... takk kærlega HelgiÖskrandi. Ég hafði heyrt söguna hjá Gunnari svo oft um þegar seinasta partý var, þá var boðið upp á fljótandi veitingar og gestirnir voru flestir í yngri kanntinum, s.s. á aldri við oss. Svo vildi ekki betur til en að meðalaldurinn í þessu partýi var um 87 ár og áfengið með fljúandi háann verðmiða. Gunnarr vildi reyndar meina það að ég hafði verið með seinast þegar svona partý var og að ég hefði eitthvað verið að ræða málin við Steingrím en hann vildi ekki koma því hausinn á sér að svo hafði ekki verið.

Allavena þá ákváðum við að reyna að finna okkur nýtt partý og á endanum þá tókst okkur að hafa uppá henni Elíni sem var orðin all svakalega ölvuð og stóð varla í lappirnar í eitthverju stelpupartýi. Þetta var rétt hjá MS og var hjá tveim 86 módelum sem bjuggu þarna. Það sem mér fannst skemmtilegast við þessa íbúð var að veggurinn á milli herbergjanna hjá þeim var með svona gati. Mjög stórt og fínt gat þar sem maður útsýnið var bara fínt, ef maður skildi nú vera að gægjast eitthvað, en hvaða perri myndi nú gera þaðSaklaus? Þarna endaði kvöldið síðan og fórum við júlli til okkar heima á meðan Gunnarr var mögulega eitthvað að gera hosur sínar grænar fyrir Ellu á bimmanumTala af sér.

En núna sit ég hérna einn með músík í botni og er að "læra". Ég er reynar að reyna að læra en það er svo erfitt þegar tónlistin er svona hátt stillt Svalur.

Kvennabaráttan í algleymingi

30. nóvember 2006 klukkan 18:04
Ég ætla að fyllgja á eftir kröftugum orðum Gunnars á hinni alræmdu Soviet Crew síðu um kvennabaráttuna. Hann spurði um hvað kvenfrelsi var og eins fáfróður og ég er gat ég ekki svarað því. Eins fáfróður og ég er þá hef ég látið sitt hvað tengt kvennabaráttunni að bögga mig. svo ég byrji á því að segja að reglur eru til staðar um það að konur meiga ekki vera færri en karlar á prófkjörslista stjórnmálaflokkana fyrir konsningar á alþingi og bæjarstjórnir. Það reyndi á þessa reglu núna fyrir stuttu því að eftir talningar á atkvæðum kom í ljós að kjósendur kusu 6 karla en 4 konur á topp 10 listann, en samkvæmt reglunum var það bannað. Til að gera lengri sögu styttri þá var einum kallinum sparkað og kona sett inn í staðin. Eins og flestir vita þá er lýðræði hérna á Íslandi og að halda lýðræðinu tel ég miklu mikilvægara en að styðja kvenréttindi, og lýðræðið var hundsað algjörlega þarna. Það skipti þó engu máli fyrir nokkrum árum þegar kosið var fyrir bæjarstjórn/borgarstjórn, eitthversstaðar á landinu þegar konurnar voru fleiri en karlar á listanum, það var bara látið standa því að við lifum jú við "algjört lýðræði".

Það er meira, núna í síðustu viku var lagt fram frumvarp á Alþingi um bílprófsréttindi ungs fólks. Það hafa flestir heyrt eitthvað um þetta enda verið mikið í deiglunni síðustu vikur. Í frumvarpinu var meðal annars lagt fram að fólk undir tvítugt má ekki keyra með farþega eftir miðnætti, fólk undir tvítugt má ekki keyra vist kraflmikla bíla, fólk undir tvítugt getur átt á þeirri hættu að ef þeir keyra of hratt verði bíllinn þeirra gerður uptækur og seldur, og eigandi bílsins fær ekkert fyrir sinn snúð, hann verður bara að lifa með því og safna sér fyrir nýjum. Síðan kom það sem mér fannst hvað mest sláandi við þetta frumvarp var að það var lagt fram að hækka aldurstakmarkið á bílpróf í 18 ár, það var reyndar ekkert að trufla mig þar sem ég er orðinn 18 ára og með bílpróf en það sem truflaði mig mikið að þessi þingmaður lagði það fram til athugunar að það ætti einungis að hækka aldurstakmarkið til bílprófs hjá fólki sem fæðist sem karlkyn. Strákar þurfa að vera 18 en stelpur 17, algjört jafnrétti þarna á ferð.

Ég ætla að bjóða mig fram til þings á næsta kjörtímabili og ætla að stofna nýjan stjórnmálaflokk til að koma mér og mínum á framfæri. Endilega segið mér ykkar skoðun á þessu öllu saman, látið mig líka vita ef þið viljið vera með mér í framboði til þings, eða borgarstjórn ... það er styttra þangað til það verður.  Stefnuskrána mína fáiði þegar það fer að nálgast kosningar.

Ladies, read and learn

28. nóvember 2006 klukkan 03:39
Krissi
1 athugasemd

Confessions 1

20. nóvember 2006 klukkan 03:24
Já það er heldur betur langt síðan bloggað var á þessari síðu, og heimsókninar segja allt sem segja þarf um vinsældir síðunnar... heilar 3 mætingar á dag að meðaltali, nei segi svona, en samt ekki. ástæða fyrir bloggleysi er skortur af hlutum til að blogga um. Ég hef margsinnis byrjað en síðan hugsa ég,,,, vá hvað þetta er eitthvað leiðinlegt blogg. Series of unfortunate events og vil ég meina að upphafið af því var þegar Gunnarr kynnti heiminum fyrir þeirri stórskrýtnu hugmynd sinni að láta allt áfengi í friði þangað til eitthverntíman um páskana eða eitthvað.
    Mér er farið að finnast eins og ég sé farinn að fjarlægjast allt of mikið af fólki. Ég heyri voðalítið frá fólki sem ég talaði mikið við í Hraðbraut, og kannski er það bara mér að kenna, það er ekki eins og ég sé eitthvað búinn að reyna að ná sambandi við þau, þó að ég vilji að mjög mikið. Það er bara svo erfitt eitthvað að hitta þetta fólk. Það er auglýst á spjallsíðu útskriftarnema 2006 að það ættu allir að hittast í hádegismat á eitthverjum góðum stað. Eins og venjulega þá er lofað öllu góðu, hinn og þessi lofa mætingu sem að skilar sér síðan engannveginn. Hey, höldum partý... það mæta kannski 10 af 100 djammþyrstu fólki, og oftar en ekki endar fólk blá edrú eða dauð. Eins og ég hef svo oft áður nöldrað yfir, er áfengisdrykkjan. Svona til að ryfja þetta allt upp, í hraðbrautarpartýjum þá eru alltaf þeir sömu - fáu sem að drekka og alltaf þau sömu - mörgu sem ekki snerta áfengi. Þeir sem drekka á annað borð eiga mjög erfitt með að hemja drykkjuna og enda oftar en ekki steindauð útí horni, og síðan má ekki gleyma trúnó-inu á fólkinu. Sumir segja: það þarf ekki áfengi til að skemmta sér. Það hafa allir heyrt þessa setningu, en það sem ég hef verið að vellta fyrir mér --> hversu oft er það sem maður sér blá-edrú manneskju halda uppi fjörinu í partýi, eða bara taka virkann þátt í því? Flest koma í partýið, setjast niður, oftar en ekki deyja nánast úr leiðindum og ég held oft að það eina sem heldur þeim þarna er það að þau eru annað hvort að fara að skutla eitthverjum heim eða niður í bæ að partýinu loknu eða eru þarna bara til að vera þarna. Síðan er það annað, hversu langt er síðan maður hitti partýdýr eins og Siggu, Danna, Bjarna, Dagnýju, Hörpu, Ebbu, Höllu, Guggu... ok ég get lengi talið áfram. Í sannleika sagt þá er ég farinn að sakna, jú flestra sem voru í Hraðbraut.
    Út í allt annað þá er ég kominn með vinnu sem laganna vörður... eða svona næstum því, ég er öryggisvörður og verð að vinna hjá Smáralindinni í Desember. Hætti  hjá Dominos mjög svo dramatýskum hætti, rétt fyrir Megaviku, er reyndar ekki búinn að fá mig lausann alveg strax en er að vinna i því. Það er furðulegt hversu leiðinlega Verslunarstjóra hægt er að ráða á stuttum tíma, fyrst kom eitthver útlendingur sem var sínöldrandi og lét fólkið vinna undir Of miklu álagi, og síðan kom enginn annar en HITLER í kvenmannslíki. Allavena þá verðum við Gunnarr góðir þarna í Smáralindinni í desember --> Vinstri ;) (Gunnarr, skilur;)).
    Ég var að fá hund. Ég hef aldrei verið neinn sérstakur dýravinur, eins og strákarnir í vogunum muna kannski eftir, þá var ég reyndar ungur og heimskur eins og þeir og gerði ýmislegt sem ég er ekki stoltur af. Ekki hafði ég búist við að fá hund eða nokkuð annað dýr, en Ragga systir hringdi í mig einn daginn,,, sem var núna í gær og sagði,,,, hey, við vorum að fá hund. Mjög skemmtilegt kvikindi sem ég fékk. Littla krúttlega Dalmator(veit ekkert hvernig það er skrifað) tík. Og ef svo óheppilega vill að þið vitið ekki hvað Dalmator hundur er þá eru þetta þessir hvítu með svörtu deplunum,,, hringir Hundalíf eitthverjum bjöllum?
    Ég er að fara með Hafdísi og hennar árgangi í útskriftarferð um páskana, farið verður til Tenerife og ég hlakka ekkert smá til, Tony Romas, ódýrt áfengi, berbrjósta tjéllingar á ströndinni ;) ahem, ahem... Ég þekki voða lítið fólk þarna, aðra en vinkonur Hafdísar en ég veit með vissu að það eru ekki margir sötrarar, hvað þá þambarar þarna inní hópnum þannig að ég er búinn að sætta mig við þá hugmynd að á meðan Hafdís fer í heils dags verslunarleiðangra verð ég haugafullur á hótelbarnum, Sex on the Beach --> without the Beach hnéhnéhné... hverjir muna ekki eftir gullmolunum hans Sveins? Hehe á meðan ég man, þá var ég að skoða síðuna hjá ferðaþjónustunni sem að útskrifarferðin mín fór með,,, hótelið sem við vorum á... það er hætt að selja í það... sem sagt þá hefur það öruglega sagt nei við öllum Íslendingum eftir þessa fræknu ferð okkar Hraðbrautlinga fyrr á árinu;)

Ég er bara hættur þessu rugli, enda orðin helvíti stór langloka, býst ekki við að fólk nenni að eiga við hana. Ef eitthver af mínum fyrrum fellow skólafélagar stranda hérna inni, þá þætti mér mjög vænt um að fá eina kveðju, þó það væri ekki nema kannski --> hæ, ég hata þig, skjóttu þig... því að þá veit ég að þið höfðuð allavena fyrir því að kíkja á síðuna mína og skrifa komment, ekki allir sem nenna að standa í því ;=)

28+1 = 14+1

27. október 2006 klukkan 16:40
Noh, núna ertu orðinn forvitinn kæri lesandi, eða kannski ekki, en þannig er mál með vexti að ég hef losað mig við heljarinnar vandamál. Það má segja að þetta hafi byrjað í sumar, þegar ég var útí Þýskalandi. Þar gat ég fengið mér allt það áfengi sem ég gyrntist. Ég ákvað að taka með mér flösku af Tequila með mér heim og 3 bjóra, enda kostaði þetta meira en helmingi minna en hérna á Íslandi, en þar sem ég er undir lögaldri þá var ég hindraður við að taka það með mér inní landið. Ég var tekinn inná teppið hjá Sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli, og var mér lofað formlegt skammarbréf, en ég hef ekki ennþá fengið það sent heim. Þegar ég kom heim þá blasti við mér 5 tómar Thule bjórflöskur sem pabbi minn hafði staflað upp fyrir framan mig, hann hafði fundið áfengið mitt sem vandlega var falið í skottinu mínu og hann drakk það allt saman. Það var engu líkar en heimur minn hafi fallið á þessarri stundu. Tollurinn og pabbi taka áfengið af mér, engu líkar en alsherjar samsæri væri gegn mér og minni drykkju.
   
Það bjargaði mér að ég var með Graape falið og drakk ég það þangað til að ég gat ekki meir. En ég komst í feitt þegar mér var boðinn 1 líter af Red Label Wiský á 2000 kall sem að ég og sullaði ég þessu í mig t.d. á Menningarnótt og eitthvað eftir það. Eftir þetta hef ég þurft að kaupa mér áfengi á Íslensku verði sem er þrisvar sinnum hærra en nánast allstaðar annarstaðar í heiminum. Ragga sys bjargaði mér með því að lána mér kyppu af Corona Extra og aftur með því að láta mig fá 0,75 l Opal. Þetta var fyrir stuttu en ég hef verið edrú í 2 vikur eða frá því að Októberfest var haldið með heljarinnar partýi hjá Háskólanum. Ég ákvað það reyndar í gær að þetta myndi ekki ganga lengur. Hingað og ekki lengra!!! Ég strunsaði út, og eyddi öllu mínu sparifé í það sem ég þráði mest þá stundina, áfengi. Hérna kemur skíring á nafninu af pistlinum fyrst í ljós en ég keypti mér 28 bjóra og 1 flösku af eplasnafs sem er ekki meira né minna en 14 lítrar af bjór og 1 líter af snafsinu. WE ARE GOING TO PART'EY.

Já á meðan ég man. Til að forðast mögulegan miskilning þá var þetta vandamál mitt að ég hef lifað við skort af áfengi síðan í sumar. Allavena þá er djamm í kvöld, endilega bjalla ef ÞÚ veist um eitthvað spennandi, annars verður þetta bara same o, same o.

Smá tilkynning. Nýr meðlimur í The Soviet Crew verður vígður við fyrsta tækifæri.

Októberfest

19. október 2006 klukkan 16:53
Tjah, ég er orðinn soldið seinn, en jáhá. Októberfest var um helgina sem leið og fór ég með Gunnari og Húna uppí Háskóla í eitt hjúmongus tjald. Þetta var í fyrsta skiptið sem ég hitti hinn umtalaða Húna og ég fékk hálfgert sjokk þegar hann sagði mér að hann væri að drekka fyrst núna í eitthverja 11 mánuði því að kærastan hafði sett hann í áfengisbann.... ÁFENGISBANN? Ég get nú rétt ímyndað mér hversu mikið ég myndi hlusta á Hafdísi ef hún ætlaði bara sí svona að BANNA mer að drekka. Ég veit ekki, en það má til gamans geta að kærastan ssem bannaði Húna að drekka er horfin á braut....humm, i wonder why.

Ég á reyndar erfitt með að trúa þessu en hann þarf alveg svakalega mikið til að verða fullur. Hann var með 1 liter af rommi sem var alveg að verða búin og sögðu þeir Gunnarr að hann væri búinn með aðra alveg eins fyrr um kvöldið, og hann var ekkert ölvaður. Ég ætla nú að trúa þessu mátulega lítið þangað til ég sé þetta allavena með mínum eigin augum. Eftir að við fórum út í átt að Tjaldinu varð Húni svo illa ölvaður að hann snéri sér við og týndist bara, og við sáum hann ekkert eftir það... en við hittum Grétar- og Helga Stóra og eftir að við fengum nóg af ofþröngvi í tjaldinu ákváðum við að skella okkur á Cafe Rosenberg.

Ohh þegar ég var að fara heim fann ég ekki eisladiska hulstrið mitt og ég hef ekki fundið það síðan.... vá hvað ég er orðinn pirraður á því að þurfa að hlusta á útvarpið endalaust. En þessi föstudagur heppnaðist bara vel fyrir utan það að eitthver STAL, já ég veit, sterkt orð en ég veit....ójá ég VEIT!!! (sefóta) en já, sem sagt þá er niðurstaðan mín að það eigi að halda OKTÓBERFEST oftarGlottandi.

Það er reyndar annað búið að gerast seinustu daga en, þjálfari 11 flokks í körfunni, sem ég æfði seinast með fyrir mánuði síðan eða eitthvað (er búinn að vera að æfa með drengjaflokki) kom og skammaði mig fyrir að hafað ekki komið og spilað með þeim á meðan ég var á æfingu.... hvernig átti ég að vita að þeir voru að spila, og hvernig átti ég að vita að ég átti að vera að spila? Ég veit það ekki, en ég ætla nú samt að mæta á æfingu hjá þeim á eftir og komast í liðið til að spila á mánudaginn. Ég er reyndar bara búinn að vera að spila með drengjaflokki til að geta spilað á móti ÞRÓTTI VOGUM 15. nóvember í VOGUNUM.

Helgin núna verður bara fín held ég.... eða bara mjög fín. Hafdís á afmæli núna á morgun....sjitt maður, ég veit ekki hvað ég á að gefa henni í afmælisgjöf... HJÁLP!!!!,,, EITTHVER!!!! Nei nei, I've got it all coveredGráðugurSvalur. Það er reyndar soldið erfitt að standa undir væntingum í sambandið við það þar sem ég fékk svo flotta gjöf frá Hafdísi. Síðan verður væntanlega eitt vikulegt djamm á Laugardaginn...ég frestaði því um heilan dag.... hohoho bara fyrir þig HafdísSaklausBrosandi.

Ég hef nú reyndar ekkert mikið meira að segja en nú get ég tekið mér pásu í aðrar 2 vikur... eða meiraTala af sérUllandiGlottandi

Þangað til næst, Bless og Bæ

KF Nörd

06. október 2006 klukkan 00:19
Sælt verður fólk sem les bloggið mitt, það voru gefnar út niðurstöður rannsóknarmanna í Albaníu að 78% af þeim sem lesa blogg eða síður sem vinir eða kunningjar halda uppi er ánægðara þegar uppi er staðið í dagslok. Þetta voru svona smá fróðleiksmolar til að opna bloggið og var það einungis úr mínu dularfulla hugsunarlíffæri að þakka að þetta komst hérna niður á blað og er þetta hin mesta lygi, so far as i know. Ég er á því að venjulegur menntskóli sé bara mun betri fyrir lífið sjálft heldur en eitthver keppni um að fara uppá hraðbraut og keyra á tvöföldum hraða. Þar sem ég er að stíga mín fyrstu skref í venjulegu kerfi, búinn að prófa hitt með misjöfnum árangri, hef ég komist að þessari niðurstöðu. Í Hraðbraut var þetta svo sem fínt á köflum og stjórn nemendafélagsins gerði líklega sitt besta til að stytta nemendum stundir þegar það mátti síst við því, kannski ástæðan fyrir því að það mættu aðeins 12 manns á böllin sem haldin voru, eða fólkið sem mætti ekki hafði bara engan áhuga á félagslyndu lífi, enda meiri hlutinn af þeim nördar sem nenna ekki að mæta á samkomur að hveskins tagi. En ef ég tæki dæmi úr mínum nýja skóla, MK þá er allt í góðu chilli, voða lítið stress á hlutunum. Núna á mánudag og þriðjudag verður bara gerð pása á öllu skólastarfi, bara rétt sí svona til að halda eitt stykki árlegan atburð sem kallast TYLLIDAGAR, þar þarf ég að mæta á 3 atburði sitt hvorn daginn, af eitthverjum 50 svo ég fái fulla mætingu. Hlutir sem í boði eru, eru t.d. M16, uppistand, dragkeppni, í fyrra var gokart og síðan verður eitthvað meira. Ok, ég hef sem sagt komist að ágæti venjulegs menntaskóla en ég get ekki beðið eftir Háskólanum eins og sást kannski á seinasta bloggi.

Ég fór á KF Nörd vs. FH á Laugardalsvelli í gær. Rosaleg stemmning, um 7000 manns og nýja gamla stúkan alveg full. Ég gat reyndar ekki verið þarna nema ú um korter því að ég þurfti að drífa mig á körfuboltaæfingu, en þegar ég fór þá var staðan 4-0 fyrir FH sem voru reyndar 7 á móti 11 Nördum. Leiknum lauk með 11-5 sigri FH. Ekki meira að sinni, veriði sæl ;)